Já krakkar mínir ef þið eruð ekki búin að fatta enn þá er bloggið annað hvort að deyja eða í hvíld er ekki alveg með það á hreinu, en það sem er á lífi er myndasíðan mín góða:)
fimmtudagur, október 21, 2004
föstudagur, september 24, 2004
Jæja góðir hálsar nú er ég búin að setja myndir frá sumarbústaðaferðinni þar síðustu helgi í bústaðinn hennar Hildar okkar sem er að yfirgefa landið og á leið í Danaveldi. Góða ferð elsku Hildur!!!!
miðvikudagur, ágúst 25, 2004
Þá er maður bara komin aftur heim til litla Íslands. Alltaf gott að koma heim! Sakna samt Köben smá alskyns hlutir sem eru þar en ekki hér. Samt hef ég komist að því að Ísland er best í heimi:) Síðasta daginn í Kaupmannahöfn ætlaði ég auðvitað að gera allt saman á nokkrum klukkutímum. Byrjuðum á því að flytja úr Öresundkollegi til Siggu með ALLT dótið okkar. Svo brunuðum ég og Sigga í stúss niðrí bæ. Kaupakaupakaupa allt sem átti eftir að versla. Vélin átti að fara hálf níu ég og Sigga komum heim um sjö úr búðarferðinni. Ég verulega stressuð átti eftir að pakka því sem ég verslaði og vissi að ég hafði EKKERT pláss í töskunni. Með pökkunartækni Siggu tókst að loka töskunni. Ég Sigga og Mæja vinkona Siggu drifum okkur í lestina með stóru ferðatöskuna, 3 handfarangurstöskur og hjólið. Þegar við komum út á lestarstöðina þá er lestin náttúrulega að fara, sem þýddi að við misstum af henni. Neyddumst því til að taka taxa. Komum alltof seint á völlinn og ég hyper stressuð, átti eftir að fá taxfree, fara með hjólið og svo tjékka mig inn. Þegar ég tjékkaði mig inn þá var ég með alltof þungan farangur sem þýddi að ég þurfti að fara eitthvað til að taka út pening og borga nokkur þúsund. Ég setti allan handfarangurinn á gólfið í tjékkinninu og konana spurði hvort allar töskurnar væru mínar, Sigga sagðist eiga þær og ég ætti eina. Svo þegar ég kemst loksins inn alveg að deyja úr stressi, þá sé ég að flugvélinni var seinkað um hálftíma. Það bjargaði alveg taugunum á mér og ég settist niður og andaði. Fólk horfði á mig eins og ég væri alveg skrítin. Hitti einn gaur sem ég þekki á leið í vélina og plataði hann til að taka eina töskuna útí vél því kellan sem spurði hvort ég ætti allar töskurnar var allt í einu mætt út í gate. Ég slapp inn með 3töskurnar og allt var gott og blessað:) Komin heil heim!!!
þriðjudagur, ágúst 17, 2004
Nú er bara ein vika í heimför. Finnst svo rosa langt síðan ég var á Íslandi að ég er búin að gleyma hvernig það er:/ Verður samt gott að koma heim og hætta þessu nokkra mánaðar eyðslufylleríi! Er að vinna klukkan 6 á morgnana að skúra einhverjar skrifstofur sem tekur mig sirka 2 tíma, er meira að segja alltaf að reyna að vera lengur en tekst svo innilega ekki að vera þanna lengur en í mesta lagi í 3 tíma. Þori ekki að segja yfirmanninum hversu fljót ég er að þessu því ég held að ég fái 5-7tíma borgaða. Svo eftir vinnu það er að segja um 8 þá fer ég bara aftur í háttinn og horfi svo á ólympíuleikana með Stínu erum rosa spenntar yfir kraftlyftingum hjá konum, pælum voða mikið í þeim. Erum svo í búðunum náttla á daginn eftir sjónvarpið og eyðum þangað til að kortin segja stopp sem hefur alveg gerst:(
sunnudagur, ágúst 08, 2004
Vá ekkert betra að gera á laugardagsnótt klukkan hálf þrjú en að setja myndir inn á síðuna! Tjékkið, var reyndar smá vandræði með daglegt líf 2 vildu ekki komast fleiri en 8 myndir inn, þarf að redda því!
föstudagur, ágúst 06, 2004
Úff það er alltof heitt hérna! 27gráður og sól á hverjum degi og ekki til að bæta ofan á það þá er major raki alla daga sem þýðir það að maður svitnar eins og svín og þarf að fara í sturtu tvisvar á dag. Versta hversu slappur maður verður í svona hita. Fékk mér einn bjór áðan og ég get svo svarið það ég finn bara á mér, sem er mjög óvenjulegt fyrir mig, ég er nánast orðin ónæm fyrir bjór drekk kannski eina kippu og finn varla á mér! En héðan er allt gott í sólinni annars. Eyði mestum tíma út í Fælleparken í sólinni með góða bók í hönd og svo náttla bjór;) Annars er ég á leiðinni heim eftir nokkrar vikur, já þýðir ekki að vera í sælu lífi endalaust, því miður þótt ég vildi.
mánudagur, júlí 26, 2004
Kókóshnetan mætt aftur eftir vikufrí! Já þessi helgi var snilldarleg. Guðrún kom í heimsókn á fimmtudaginn og var yfir helgina svo komu frændur mínir líka yfir helgina og voru á mesta eyðslufylleríi sem ég hef vitað. Já þeir eru algjörir snillingar. Pabbinn kom með sem er sextugur og hann kom með okkur allt að djamma, á alla skemmtistaðina, mjög skrautlegt! Það var svo tívolí ferð á laugardaginn. Ég kom sjálfri mér bara mjög á óvart fór bara í öll stóru tækin og vildi fara aftur og aftur, er semsagt ekki skræfulingur lengur :) Ég er enn í atvinnulausufríi er samt að fara með dósir í endurvinnslu til að græða fullt af pening ;) Allavega til nóg af bjórflöskum á þessum bæ!

